þriðjudagur, desember 18, 2007

Verðsamráð á jólatrjám
Lögreglan hér í Danmörku rannsakar nú meint verðsamráð danskra jólatrjáaframleiðenda. Ef þetta reynist rétt þá er hér um háalvarlegt mál að ræða. Hvernig er Danmörk eiginlega að verða? Samtök jólatrjáaframleiðenda segjast ekki hafa viðhaft verðsamráð heldur aðeins haldið "námskeið" í hvernig ætti að verðleggja tréin. Ég get bara ekki hugsað til þess að kannski hafi ég borgað 20 kr. of mikið fyrir jólatréið í fyrra en ég hefði annars gert ef um eðlilega samkeppni hefði verið að ræða. Ætli væri ekki best að sniðganga jólatréið í ár og senda þau öll til Íslands þar sem verðsamráð er eitthvað sem aldrei hefur verið þekkt. Þar með er líka jólatrjáaskortur Íslendinga úr sögunni. Ég bara finn mig ekki í svona löguðu með verðsamráð. Sem betur fer er ég að fara að eyða jólunum á Íslandi þar sem full samkeppni hefur alltaf verið við lýði.

Góðar stundir.

| |


:: Info ::


Guðmundur Daníelsson

Elbagade 17, st.tv.
2300 København S
Danmark

Tel: +45.32.97.18.24
Mob: +45.61.60.24.88

gudmundur.danielsson
@gmail.com

:: Myndir ::

GB í London

:: Daglegt mál ::


IngibjörginÁrni.hamstur
Ása Björg
Berglind
Birgir Þór
Egill
Elva Björg
Guðmunda
Guffi
Gulla
Halli Volvo
Hildur Sveins
Ingibjörg frænka
Katrín Hilmars
Magga Pé
Rakel Sif
Sara Jóna
Sara Pé
Sigrún Halla
StefánEinar.com
Svava Lóa
Sunna
Tanja Rut
Victor Knútur
Þórir Strmpur