miðvikudagur, september 26, 2007
On my way to to US and A
Nokkrir klukkutímar þanngað til að ferðin hefst til Minneapolis. Við Helgi Páll erum að fara að heimsækja Gauta og Sigríði Völu þar. Ætlum að eyða nokkrum dögum þar, fara á tónleika, afmæli og ætli við kíkjum ekki í Mall of America. Þá ætlum við að fljúga yfir á vesturströndina (vinstriströndina) til San Francisco, ætlum að reyna að hitta Victor Knút þar á bæ. Þaðan ætlum við okkur að keyra niður til Los Angeles og taka einn rúnt þar á leið okkar til Las Vegas. Þar ætla Gauti og Sigríður Vala að hitta okkur. Við gistum á MGM Grand hótelinu við "The Strip". Þar ætlum við m.a. að kíkja á söngleikinn "Love" sem er skrifaður útfrá lögum eftir Bítlana. Það er engin vafi um það að þetta verður allt saman mikið ævintýri. I'm off, so later... | | |
:: Info :: :: Myndir :: :: Daglegt mál :: |