mánudagur, júní 04, 2007

Góður dagur í Fælleparken

Á laugardaginn var landsleikur Dana og Svía í Parken. Það var rosaleg stemning fyrir leikinn og voru fullt af Svíum komnir yfir brúna strax á föstudaginn. Við Helgi vorum mættir í Fælleparken um kl. 5 og þá voru búnir að vera tónleikar og skemmtiatriði þar síðan kl. 12. Fyrir þá sem ekki vita þá er Fælleparken steinsnar fra Parken þar sem leikurinn var spilaður uppá Østerbro. Löngu uppselt var á leikinn. Þar inni voru 42.000 manns og í Fælleparken voru uþb. 50.000 manns og mikil stemning. Bæði hjá Dönum og Svíum, enda höfðu þeir gulu fjölmennt. Svo hefst leikurinn og þetta byrjaði nú ekki vel fyrir Danina, komnir 0-3 undir eftir 25 mínútur. Það mátti sjá tár falla hjá Dönum og einstaka maður spurði hvort að ég gæti hjálpað til með að fá íslenskan ríkisborgararétt. Öllu lauslegu var kastað í Svíana þegar þarna er komið við sögu og gengu bjór gusurnar yfir okkur sem stóðum nálægt þeim. Þetta skánaði nú aðeins þegar að Daniel Agger náði að setja eitt fyrir Danina. En lögreglan var tilbúin á kantinum ef að allt færi í upplausn með táragasið og hollensku bílana. Síðan fóru hlutirnir að gerast í seinnihálfleik. Danir komu sterkt tilbaka og náðu að jafna í Parken og ég hélt að allt myndi verða vitlaust. Grátur af gleði, flugeldar, faðmlög, vi er røde, vi er hvide og allt eftir því. Það var eins og Danir hefðu hreinlega unnið Evrópumeistaratitilinn... aftur. Svo gerist það sem aldrei á að sjást í fótbolta eða íþróttum yfir höfuð, Christian Poulsen fær smá olbogaskot í öxlina eins og svo oft gerist í teignum, hvað gerir Hr. Poulsen, jú hann tekur sig til og kreppir hægri hnefan og kýlir Svían góðu höggi í magan þannig að hann fellur um leið, óvígur. Þetta högg var þannig að Mike Tyson hefði verið stoltur, allt gefið í það. Línudómarinn sér höggið, flaggar og gefur dómaranum merki um að Poulsen hafi unnið fullnaðar sigur á Svíanum. Hr. Poulsen fær rauða spjaldið í verðlaun fyrir það. Hvað var að gerast? Ekki allt búið enn. Einn Daninn sem ekki hafði fengið að taka þátt í götubardögum í kringum Ungdomshuset, nota bene, afþví að hann býr í Svíþjóð, finnst yfirvaldið ekki vera að sinna réttlætinu og ákveður að reyna að gefa hinum þýska annars ágæta dómara einn á kjaftinn að gömlum sið. Nei, nú fóru þeir alveg með það. Allir þeir 92.000 áhorfendur ásamt dönsku og sænsku þjóðinni stóðu algerlega orðlausir. Eftir smá ráðstefnu, flautar dómarinn leikinn af og bendir leikmönnum til búningsklefa, enda ekki annað hægt eftir svona atvik. Þannig að þarna endaði þessi mjög svo spennandi leikur og fótboltaveisla, fullt af mörkum, fullt af fólki og stemninginn rosaleg. Sennilega bara eitt orð yfir þá félagana Hr. Poulsen og Karate-Kid, IDIOTER.

| |


:: Info ::


Guðmundur Daníelsson

Elbagade 17, st.tv.
2300 København S
Danmark

Tel: +45.32.97.18.24
Mob: +45.61.60.24.88

gudmundur.danielsson
@gmail.com

:: Myndir ::

GB í London

:: Daglegt mál ::


IngibjörginÁrni.hamstur
Ása Björg
Berglind
Birgir Þór
Egill
Elva Björg
Guðmunda
Guffi
Gulla
Halli Volvo
Hildur Sveins
Ingibjörg frænka
Katrín Hilmars
Magga Pé
Rakel Sif
Sara Jóna
Sara Pé
Sigrún Halla
StefánEinar.com
Svava Lóa
Sunna
Tanja Rut
Victor Knútur
Þórir Strmpur