laugardagur, apríl 28, 2007

Sælt veri fólkið

Mér skilst að sumarið sé komið til Danmerkur. Það stóð allaveg í Ekstrabladet og ekki fer það nú að skirfa einhverja vitleysu. Ýmislegt búið að vera um að vera hérna hjá okkur í Baunaveldi. Rétt fyrir þá sem finnst betra að vita afþví þá er ég búinn að kjósa og atkvæðið fór heim undir strangri öryggisgæslu. Meira af strangri öryggisgæslu, hún var líka ströng á Rigshospitalet þegar að nýfædd prinsessa Dana fór undir beran himinn í fyrsta skipti. Fréttamenn voru gjörsamlega að missa sig þarna og báru upp misgáfulegar spurningar til foreldrana. Einn öryggisvörðurinn varð heimsfrægur í Danmörku í þessari útsendingu eftir að myndavélinn hafði verið á honum í ca. 20 mínútur samfleitt. Ef hann vann fyrir leyniþjónustuna hér í landi þá er hann ekki mjög leynilegur lengur.
Það er ekkert leynilegt við það að ég er geymdur hérna niðrí kjallara núna og er einn á hópafundi (spennandi og uppbyggilegar umræður hafa farið fram) en stefni ekki að því að vera hérna mjög lengi í dag heldur kíkja aðeins á sólina, þá kannski í garðinum hjá Loga og Valdísi uppi á Østerbro.
Í gær fórum við Ingibjörg og hittum Ella og Ásu í Tivolí, fórum með þeim út að borða og síðan stungum við nefinu inn á eins og einn pub. Mjög skemmtilegt kvöld.
Annars er dagskráin þannig næstu vikurnar að ég stefni að því að klára eins og tvö verkefni, fara í þrjú próf og vera búinn með þessa önn 27. júní, já ég sagði 27. júní sem er auðvita kjánalega seint. Síðan verður haldið til Íslands. Einföld en krefjandi dagskrá, ekki satt?

Bið að heilsa í bili

| |


:: Info ::


Guðmundur Daníelsson

Elbagade 17, st.tv.
2300 København S
Danmark

Tel: +45.32.97.18.24
Mob: +45.61.60.24.88

gudmundur.danielsson
@gmail.com

:: Myndir ::

GB í London

:: Daglegt mál ::


IngibjörginÁrni.hamstur
Ása Björg
Berglind
Birgir Þór
Egill
Elva Björg
Guðmunda
Guffi
Gulla
Halli Volvo
Hildur Sveins
Ingibjörg frænka
Katrín Hilmars
Magga Pé
Rakel Sif
Sara Jóna
Sara Pé
Sigrún Halla
StefánEinar.com
Svava Lóa
Sunna
Tanja Rut
Victor Knútur
Þórir Strmpur