miðvikudagur, janúar 24, 2007
Ég er staddur í Borgarnesi þessa stundina. Fyrir þá sem ekki vita er ég búinn að vera hér á Íslandi nánast allan janúar. Skrapp rétt eina helgi til að taka eitt próf sem að ég átti eftir.
Það er búið að vera frekar rólegt hérna í Borgarnesinu. Ég fer í vinnuna, kíkji kannski á hænurnar þegar að ég kem heim í sveitina, síðan er það aðallega sjónvarpsgláp sem einkennir kvöldin. Fór reyndar yfir í Reykjavíkurhreppinn síðustu helgi og kíkti á djammið á föstudaginn og fór síðan til Sandgerðis á laugardagskvöldinu og kíkti á Gullu og Tóta, sem ég hafði ekki hitt lengi. Mjög gaman að koma til þeirra og sjá hvað þau eru búin að koma sér vel fyrir í flotta húsinu sínu. Gulla var svo myndarleg og saumaði sér eina peysu þarna um kvöldið. Dugleg stelpan. Annars er talað um lítið annað hérna en handbolta þessa dagana og það er einmitt fyrsti leikurinn í milliriðlinum í dag. Það verður spennandi að horfa á það. Heiða ætlar síðan að koma í mat til mín í kvöld. Það verður gaman að fá stelpuna í heimsókn. Varla búinn að hitta hana á nýju ári. Jæja, ég er over and out... | | |
:: Info :: :: Myndir :: :: Daglegt mál :: |