föstudagur, nóvember 19, 2004

Hér var að berast stormviðvörun:
Austurland að Glettingi og Austfjarðamið. Búist er við stormi allt að 25 m/s í nótt og fram á morgundaginn. Eitthvað í þessa áttina hljómaði stormviðvöruninn sem var gefin út hérna í fyrrakvöld. Oftast tökum við svona viðvaranir ekkert alltof alvarlega heim á Íslandi. En hérna var gert mikið úr þessu. Það var Live-Coverage hjá TV2 á netinu og Dönunum fannst þetta mikið mál ef að vindhraðinn færi yfir 25 m/s. Þá myndu þeir kannski fjúka til Svíþjóðar. En sem betur fer slasaðist enginn í þessu mikla "óveðri" sem gekk hérna yfir Skandinavíu. Það varð rafmagnslaust í Odense í hálftíma og það fauk stór stillans um koll á Litla-beltis brúnni. Það eina sem ég hafði útúr þessu var að hjóla í skólan í mótvindi, tvisvar!
Hans og Heiða, móðurbróðir Ingibjargar og konan hans eru að koma hingað til okkar í dag og ætla að kíkja á stemminguna hérna í Kaupmannahöfn. Jóla-Tívolí er búið að opna og sem stoltur eigandi árskorts í Tívoli verður maður auðvita að skoða það. Vissulega...

| |

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Enn og aftur, ég er kannski búinn að lifa og lengi á því að það hafi verið gaman á Þjóðhátíð. Núna reynir maður að fara að skrifa eitthvað aftur.
Héðan úr Köben er allt fínt að frétta, ég og hópurinn minn vorum að klára tveggja vikna verkefni í síðustu viku. VIð höldum að það hafi bara gengið ágætlega en fáum ekkert að vita fyrr en í Desember.
Í gær fór ég á mína fyrstu körfuboltaæfingu í nokkur ár. Ég er ekki frá því að ég sé með meiri harðsperrur en eðlilegt er núna í dag og smá blöðrur á fótunum. En þetta var mjög gaman. Það er kannski merki um það hversu langt er síðan að ég fór á æfingu að ég á bara lága innanhúss fótboltaskó.
Nú er mánuður þanngað til að maður kemur heim um jólin, en áður en það gerist förum við Ingibjörg til Englands, Sheffield nánar tiltekið. Við erum að fara að heimsækja Berglindi og Örn og kíkja aðeins á lífið hjá bretanum. Við erum að fljúga með Mærsk-Air og hjá þeim er hægt að velja hvað maður vill hafa langt milli sætana. Við erum í small sæti sem þýðir 70cm á milli (standardinn er 80cm hjá IcelandAir). Ég vona að ég meiki þetta, en þetta er ekki mjög löng ferð þarna yfir. Kannski verður maður bara settur á Buisiness Class eins og síðast þegar að ég ferðaðist með Mærsk-Air. Sem gerðist reyndar aftur þegar að ég fór síðast heim með IcelandAir, þá var yfirflugfreyjan ekki alveg ánægt með hvaða sæti ég ætti að sitja í og bað mig að setjast á Business Class. Ég var mjög ánægður með þetta. Þriggja rétta og nóg pláss fyrir langa fætur.
Jæja best að fara að kíkja á hver vinnur Idols hérna í DK.
Hilsen,

| |


:: Info ::


Guðmundur Daníelsson

Elbagade 17, st.tv.
2300 København S
Danmark

Tel: +45.32.97.18.24
Mob: +45.61.60.24.88

gudmundur.danielsson
@gmail.com

:: Myndir ::

GB í London

:: Daglegt mál ::


IngibjörginÁrni.hamstur
Ása Björg
Berglind
Birgir Þór
Egill
Elva Björg
Guðmunda
Guffi
Gulla
Halli Volvo
Hildur Sveins
Ingibjörg frænka
Katrín Hilmars
Magga Pé
Rakel Sif
Sara Jóna
Sara Pé
Sigrún Halla
StefánEinar.com
Svava Lóa
Sunna
Tanja Rut
Victor Knútur
Þórir Strmpur