fimmtudagur, ágúst 05, 2004

Það var eins og maður vissi, rosalega gaman á Þjóðhátíð. Við fórum á flugi á föstudaginn. Reyndar var ófært þegar að við áttum að fljúga en síðan biðum við í smá tíma og þá kom Ása með "to thumbs up" og sýndi okkur að það væri orðið fært til Eyja. Við fórum beint niðrí dal og kíktum á fólkið þegar að við komum. Þar var hlaðið borð af kræsingum í tjaldinu hjá Tönju og co. eins og var reyndar alla helgina hjá þeim. Síðan fengum við að tjalda í garðinum hjá Óla og Þóru. Mér finnst það alger lúxus að fá að vera inní bæ. Við vorum í stöðugum veislum alla helgina og fór mjög vel um okkur. Nýr lundi, reyktur lundi, kjötsúpuveisla, túnski og heitt kakó :) Brennan var flott, flugeldasýningin flottari og brekkusöngurinn frábær. Í alla staði frábær Þjóðhátíð.

Núna á morgun er Casper vinur minn frá Danmörku að koma. Ég ætla að reyna að taka túrista pakkann á þetta. Gullfoss og Geysir, Þingvellir, Bláa Lónið, Húsafell, Borgarfjörðinn, Reykjavíkina og eitthvað skemmtilegt. Þetta verður stuð. Fínt að hita dönskuna aðeins upp áður en að maður fer aftur út.

| |


:: Info ::


Guðmundur Daníelsson

Elbagade 17, st.tv.
2300 København S
Danmark

Tel: +45.32.97.18.24
Mob: +45.61.60.24.88

gudmundur.danielsson
@gmail.com

:: Myndir ::

GB í London

:: Daglegt mál ::


IngibjörginÁrni.hamstur
Ása Björg
Berglind
Birgir Þór
Egill
Elva Björg
Guðmunda
Guffi
Gulla
Halli Volvo
Hildur Sveins
Ingibjörg frænka
Katrín Hilmars
Magga Pé
Rakel Sif
Sara Jóna
Sara Pé
Sigrún Halla
StefánEinar.com
Svava Lóa
Sunna
Tanja Rut
Victor Knútur
Þórir Strmpur