miðvikudagur, júlí 07, 2004
Nú um miðjan sólmánuð vætir af himni hér í Borgarfirði. Annars allt fínt að frétta. Ingibjörg skellti sér í óvænta heimsókn hingað upp á klakan í síðustu viku. Það var rosalega gaman að sjá hana. Ég er búinn að fá einkunnir úr öllum prófum og þetta gekk líka bara svona ljómandi vel. Núna er maður bara að spila golf og reyna að koma sér í einhverja æfingu, síðan byrjar meistaramótið í næstu viku. Síðan var maður aðvita að bóka sér flug til Eyja. Við verðum í fyrrafallinu núna þetta árið og fljúgum um hálf þrjú leytið. Þetta verður mikið fjör.
Ég fékk smá beina útsendingu frá Helga Páli sem var á Hróarskeldu, Pixies hljómuðu mjög vel í gegnum símann og það hefur örugglega verið mikil stemming þrátt fyrir drullu uppað hnjám. Later, | | |
:: Info :: :: Myndir :: :: Daglegt mál :: |