mánudagur, júní 14, 2004

Endelig færdig...

Þá er síðasta prófið búið. Það var í morgun og var tölvunarfræði. Þetta gekk bara ágætlega held ég. Síðustu tvær vikurnar er ég búinn að vera að gera tölvunarfræðiverkefni í hóp með 3 öðrum gaurum, það gekk bara vel líka og við skiluðum ágætisverkefni held ég. Annars fór ég í tvö önnur próf, þjóðhagfræði og stjórnun. Í þjóðhagfræðinni var bara eitt munnlegt próf og mikið rosalega var ég stressaður þegar að ég labbaði þarna inn, og átti að rausa öllu uppúr mér sem ég vissi um Þjóðhagslegt gildi landbúnaðar í dönsku hagkerfi. Já, ég veit það þetta hljómar rosalega spennandi. Ég náði þessu prófi og fékk 7. Í Stjórnuninni var þetta aðeins flóknara. Við vorum búin vera að gera verkefni síðan ég veit ekki hvenær, og síðan áttum við að verja það, og gagnrýna annað verkefni. Við fengum s.s 9 fyrir verkefnið, 10 fyrir vörnina og 6 fyrir krítíkina, eða 9 í faginu til samans sem var bara nokkuð gott. Núna verður maður bara að bíða í einhvern mánuð þanngað til að einkunninn kemur úr tölvunarfræðinni. En núna er ég kominn í sumarfrí og það er mjög gott.
Annars er það að frétta að ég er að fara heim til Íslands 18. júní og verð til 20. ágúst. Ég verð í Borgarnesi að vinna í Sparisjóðnum og síðan er stefnan að spila dálítið golf þetta sumarið.
Ég er búinn að kíkja á nokkra tónleika núna að undanförnu, Metallica, Britney Spears, Gipsy Kings, The Cardigans og eitthvað fleira... Metallica voru rosalega þéttir, þeir spiluðu fullt af gömlu góðu, það ætlaði allt að verða vitlaust þegar að þeir tóku Nothing Else Matters, þeir voru líka duglegir við aukalögin, Lars Ulrich var í góðu stuði. En ég var ekki alveg að rokka með Slipknot sem var að hita upp fyrir þá félaga. Ég held að ég sé ekki alveg á sömu bylgjulengd og þeir drengir.

Jæja, núna er Danmörk-Ítalía að byrja í sjónvarpinu og það er best að fylgjast með honum. Ég er alveg dottinn inní EM þessa dagana og horfi á hvern leikinn á fætur öðrum.
Hafðið það gott þanngað til næst...

| |


:: Info ::


Guðmundur Daníelsson

Elbagade 17, st.tv.
2300 København S
Danmark

Tel: +45.32.97.18.24
Mob: +45.61.60.24.88

gudmundur.danielsson
@gmail.com

:: Myndir ::

GB í London

:: Daglegt mál ::


IngibjörginÁrni.hamstur
Ása Björg
Berglind
Birgir Þór
Egill
Elva Björg
Guðmunda
Guffi
Gulla
Halli Volvo
Hildur Sveins
Ingibjörg frænka
Katrín Hilmars
Magga Pé
Rakel Sif
Sara Jóna
Sara Pé
Sigrún Halla
StefánEinar.com
Svava Lóa
Sunna
Tanja Rut
Victor Knútur
Þórir Strmpur