miðvikudagur, maí 05, 2004
Kíktum á Kill Bill vol. 2 á laugardaginn. Tarantino er snillingur! Mér fannst sándtrakið þó betra í fyrri myndinni. Þetta var frábær mynd og gaf hinni fyrri ekkert eftir. Ég var einmitt búinn að fjárfesta í fyrri myndinni á DVD áður en að ég fór á vol. 2, hún sómar sér vel í DVD-hillunni. Annars er ég bara uppí skóla núna að bíða eftir að hópurinn minn mæti, við erum alveg á síðustu metrunum með verkefnið um Gallup. Núna á bara eftir að lesa það yfir og leiðrétta stafsetningarvillur (ég get kannski ekki mikið tekið þátt í að leiðrétta dönsku), síðan er bara að prenta út og skila. Það er þannig hérna að maður þarf alltaf að skila verkefnum í 3 eintökum, mjög skemmtilegt. En þetta verkefni er ekki nema 65 blaðsíður þannig að þetta er nú allt í góðu núna en það tók sinn tíma að prenta(4 sinnum) út 130 síðna tölvunarfræðiverkefnið sem við gerðum.
Ingibjörg er að fara til Íslands í kvöld. Þannig að ég verð einn í kotinu næstu daga. Það verður nóg að gera áfram. Ég á að skila verkefni á næsta föstudag í þjóðhagfræði. Næstu dagar munu fara í það. | | |
:: Info :: :: Myndir :: :: Daglegt mál :: |