fimmtudagur, apríl 29, 2004

Colin Powel í Kaupmannahöfn
Það var mikið um að vera í kringum skólan minn í dag. Colin Powel vildi hitta dönsk ungmenni á þessari 6 tíma heimsókn sinni hérna í Danmörku. Það var ákveðið að fara með hann í Frederiksberg Gymnasium sem er einmitt við hliðina á skólanum mínum CBS. Þegar að ég var búinn í fyrsta tímanum mínum í morgun um hálf ellefu leytið, þá ákvað ég nú að kíkja aðeins á þetta. Þegar að ég kom út úr skólanum þá mættu mér bara löggur á hverju horni. Ég labbaði aðeins lengra á þá mættu mér bara enþá fleiri löggur með hjálma og og vel vopnaðir. Það var víst ekki mjög langt í að Powel myndi mæta á staðinn. Ég hugsa að það hafi verið um 500 lögreglumenn þarna á staðnum. Þá voru líka 3 herþyrlur í loftinu fyrir ofan okkur. Þá komu fjögur mótorhjól hvert með tveim löggum á önnur vopnuð sjálfvirkri byssu. Þannig að ég var nú alveg rólegur þarna og var ekkert að hlaupa fyrir bílinn hjá honum. Þá kom loksins bílalest Powels. Það var eins og við var að búast sírenuvæl 3-4 bílar með lífvörðum frá USA og síðan keyrði Powel framhjá. Ég rétt sjá í kollinn á honum en það var nú ekki lengi. Síðan keyrði hann niðrí skólan og var víst í skólanum í 45 mínútur og svaraði spurningum. Þetta var allt eins og maður væri kominn í einhverja bíómynd, ég hef aldrei séð jafn mikið að lögreglumönnum og byssum. Þetta var enginn smá viðbúnaður. Það voru líka löggur í skólanum hjá okkur til að leita að leyniskyttum á svölunum. Skemmtileg upplifun að sjá allt þetta tilstand. Mér fannst samt nokkuð skondið að á horninu þar sem að hann átti að beyja upp að skólanum er bæði McDonalds og Seven-Eleven, skemmtlega amerísk tilviljun.
10-4 over and out.

| |

miðvikudagur, apríl 28, 2004

Vildi bara uppfræða ykkur um það að það er ekki ólöglegt að fara með hest í Metró hérna í Kaupmannahöfn. Það er sem sagt í lagi að fara með brún skjótta klárinn þinn í Metró svo framarlega að hann trufli ekki aðra farþega í lestinni þá má vísa þér út. En takið eftir því að hesturinn verður að borga barnagjald, eins og önnur dýr í Metró-kerfinu. Ég á alveg eftir að sjá einhvern með hestinn sinn í Metró en ég var að lesa þetta í blaði sem Metróinn gefur út og það var sérstakur dálkur um þetta.

| |

sunnudagur, apríl 25, 2004

Já, sunnudagur... Ég er búinn að hafa það rólegt í dag horfa á formúluna og eitthvað annað sem var í imbanum. Var í skólanum í allan gærdag að gera Gallup verkefnið. Ekki sérlega spennandi að sitja inní pínu herbergi í 8 tíma og greina svör starfsmanna Gallup, sérstaklega ekki þegar að það er gott veður eins og var í gær. Lilja, Berglind og Edda komu hingað á föstudaginn fyrir viku í stelpuferð, Edda var fram á sunnudag en Lilja og Berglind voru fram á miðvikudagskvöld. Á laugardaginn fórum við í Tívolí og prufuðum nýja rússíbanan. Það var stutt og dýr er góð skemmtun. Það kostar 60 DKK að fara ferð í nýja tækinu. Síðan var líka hörku hasar þegar að við vorum á leiðinni upp í röðinni. Það var verið að henda einhverjum gaurum út og fyrst voru þeir voða rólegir en síðan réðust þeir á verðina og það þurfti 5 verði að halda einum niðri. Sá hinn sami hafði rétt áður reynt að klóra augun úr verðinum og henda honum fram yfir handriðið (6 metrar niður). En þetta blessaðist nú allt saman.
Núna á föstudagskvöldið kíktum við Ingibjörg á tónleika með Gipsy Kings. Það var hörkustuð og gaman að sjá þá á sviði. Þeir eru 7 sem spila á gítar og þar af voru 4 sem eru örvhentir. Þetta fannst mér mjög merkilegt. Gauti, hvað segiru um þetta :-) Þeir spiluðu mest lög af nýja disknum sem að þeir voru að gefa út, Roots. Síðan tóku þeir nokkra gamla góða slagara. Nú er bara að fara að æfa sig á gítarinn...

| |


:: Info ::


Guðmundur Daníelsson

Elbagade 17, st.tv.
2300 København S
Danmark

Tel: +45.32.97.18.24
Mob: +45.61.60.24.88

gudmundur.danielsson
@gmail.com

:: Myndir ::

GB í London

:: Daglegt mál ::


IngibjörginÁrni.hamstur
Ása Björg
Berglind
Birgir Þór
Egill
Elva Björg
Guðmunda
Guffi
Gulla
Halli Volvo
Hildur Sveins
Ingibjörg frænka
Katrín Hilmars
Magga Pé
Rakel Sif
Sara Jóna
Sara Pé
Sigrún Halla
StefánEinar.com
Svava Lóa
Sunna
Tanja Rut
Victor Knútur
Þórir Strmpur