miðvikudagur, apríl 14, 2004
Þá eru páskarnir liðnir og allt komið á fullt í skólanum aftur. Mamma og pabbi komu hingað í heimsókn 3. apríl og fóru aftur heim annan í páskum. Við höfðum það mjög gott hérna þessa viku. Löbbuðum Strikið og kíktum á Ny Havn. Síðan fórum við til Dragør, sem er lítill bær hérna rétt fyrir sunnan okkur. Tekur mig 30 mín. með strætó. Þarna eru þröngar götur og lítil hús og allt voðalega rólegt. Það er eins og að maður sé kominn 100 ár aftur í tíman. Þá kíktum við líka á Bakken og prufuðum tækin aðeins, það var bara leiðinlegt veður þá þannig að við vorum ekki lengi. Pabbi og mamma komu með fulla tösku af mat og nammi og páskaeggjum. Það var alveg frábært að fá íslenskan mat. Flatkökur og kæfu frá ömmu, lambalæri og fleira. Ísskápurinn okkar er fullu af alskonar góðgæti. Pabbi tók sig til og lagaði fataskápin hjá okkur og lakkaði einn gluggan hjá okkur. Annars sváfum við bara frameftir og höfðum það rólegt.
| | |
:: Info :: :: Myndir :: :: Daglegt mál :: |