föstudagur, apríl 02, 2004
Það sem mér finnst frábært er fólk sem reynir að hjóla og senda SMS í leiðinni. Mér finnst nú bara nógu erfitt að senda SMS, bara svona eitt og sér. Þá segir kvennkynið: Haha, þú getur bara gert eitt í einu afþví að strákar geta bara gert einn hlut í einu. En hér er ég nú samt að blogga með vinstri og drekka kaffi með hægri. Annars aftur að efninu, ég held að fólk sem er að senda SMS og hjóla ætti bara að stoppa í smá stund og klára þann business. Þetta stefnir hjólaöryggi mínu og margra annara í stórfelda hættu.
Annars er föstudagur og gott veður, ég er að fara að prenta út 100 eintök af spurningunum sem við ætlum að dreifa í Gallup það eru s.s. 500 blöð eða svo. Það er ótrúlega gaman að fá að spyrja fólkið sem er að spyrja allt hitt fólkið allan daginn. Meira af spurningum, Gettu betur úrslitin eru í kvöld og ég vona að minn gamli skóli Verzló taki þetta, aldrei að vita nema að maður horfi á þetta á ruv.is í kvöld. Later... | | þriðjudagur, mars 30, 2004
Ég er hérna enþá. Það er bara búið að vera alveg vitlaust að gera. Ég skilaði tölvunarfræðverkefninu á síðasta föstudag. 60 blaðsíður og fullt af kóða. Það er ágætt að það er búið. Þá eigum við eftir að gera lokaverkefni fyrir árið(hópverkefni) og síðan er líka skriflegt próf í tölvunarfræði. Heljarinnar fjör. Síðan var ég að skila áðan verkefni í þjóðhagfræði og síðan erum hópurinn minn að verja Á-miðri-leið-Gallup verkefnið. Hérna er alveg Mallorca-veður 15 stiga hiti og sonna. Veit samt ekki hvað þetta endist lengi en við vonum það besta. Maður er búinn að vera að skoða myndir frá USA-drengjunum þ.e. Biggi, Gauti og Victor. Þeir eru allir búinir að vera í Springbreak. Mér sýnist á myndunum að það hafi nú alveg verið fjör hjá þeim. Ég hefði svo verið til í að kíkja til þeirra og tékka á Florida, Mexico, Las Vegas og Lake Havasu. En maður tekur bara páskafríið hérna í DK og hefur það gott. Pabbi og mamma eru að koma í heimsókn á næsta laugardag og ætla að vera fram yfir páska. Jæja, það er best að setjast fyrir framan imban og sjá hvað hann hefur uppá að bjóða.
Síðan verð ég að fara í klippingu, ég hef ekki farið í klippingu síðan í nóvember og fyrir þá sem ekki gera sér grein fyrir hvernig hárið á mér lítur út eftir að hafa verið óklippt í 5 mánuði þá erum við að tala um 15 cm heysátu á hausnum ef að ég geri ekkert við það. Klippi-klipp. Ég er að spá í að taka bara rakvélina á þetta... | | |
:: Info :: :: Myndir :: :: Daglegt mál :: |