föstudagur, mars 19, 2004
"Absalút nauðsynlegt" sagði forsetinn í Kastljósinu í gær. Ég hélt að sjálfur forsetinn gæti nú talað betri íslensku í Ríkissjónvarpinu. Það er kannski bara töluð enska á hans heimili. Já, ég horfði á Kastljósið í gær, reyndar líka tíu fréttirnar og síðan að sjálfsögðu Gettu Betur. Glæsilegt hjá Borgarholti að slá mr-ingana út. Enda má segja að ég og Borgarholt séum svona pínu (mis)skildir þ.e. ég er að sjálfsögðu úr Borgarnesi og hef búið síðustu árinn í Brautarholti. Þið megið síðan bara sjá um restina.
Hérna á Elbagade gengur bara ágætlega með verkefnið nema hvað að tölvan mín er búin að vera með bölvuð læti í dag og er búin að vera frekar snúin. En ég er búinn að snúa af henni og hún er í lagi núna. Þannig að núna ætti þetta að fljúga áfram. Þetta verður massað um helgina. | | þriðjudagur, mars 16, 2004
Jæja, þá...
Ég er kominn á fullt með verkefnið, ansi spennandi eða þannig. Fyrir þá sem hafa áhuga(sennilega ekki neinn) þá er ég að gera tónlistargrunn í PostgreSQL og síðan á ég að útbúa notendaviðmót í Java sem á að geta stillt upp einhverjum playlista og eitthvað svoleiðis. Spennandi. Það sem að heldur manni gangandi núna er góð ÍSLENSK tónlist. Þar mæli ég með hljómsveitinni Hundi í óskilum. Þeir félagar eru óborganlegir. Efst á blaði hjá mér núna er lagið Final Countdown í útsetningu eins og Gipsy Kings hefðu tekið það og haft með sér tyrkneskan óbó leikara. :-) Fleiri lög á disknum eru t.d. Smuk som et stjerneskud, Kötukvæði, Undir Bláhimni og smellurinn Álfheiður Björk. Þeir spila meðalannars sexraddað á blokkflautu. Ég vil bara þakka tonlist.is fyrir stuðninginn. Hérna er aðeins farið að hlýna hjá okkur, náðum uppí 10 stigin um helgina. Ég fór líka út og þreyf og smurði hjólið mitt. Strætókortið verður ekki endurnýjað fyrir næsta mánuð. Þannig að núna er fjallatrukkurinn orðin tilbúinn fyrir átök vorsins. Dönunum líst reyndar ekkert á þetta hjól sem að ég er á, alltof margir gírar og alltof gróf munstruð dekk fyrir þá. Síðan á ég líka eftir að kaupa mér ný bretti á fákinn, þeim síðustu var stolið. Þjófurinn hafði mikið fyrir þessu, aftengdi bremsurnar, tók framhjólið undan skrúfaði brettið niðrúr gafflinum og setti hjólið aftur á og tengdi bremsurnar svo að hann myndi nú örugglega ekkert tefja mig þegar að ég ætlaði að hjóla næst. Puff... Later | | |
:: Info :: :: Myndir :: :: Daglegt mál :: |