laugardagur, mars 13, 2004

Kíkit á Torsdagsbar á fimmtudagskvöldið. Þar var mikið af fólki eins og vanalega. Hitti þar Ásu og Guðrúnu sem eru víst bara búnar að klikka á einum Torsdagsbar síðan að þær komu hingað til DK. Á föstudaginn var síðan kíkt á forritunarverkefnið og lesið og lært. Í dag datt mér síðan í hug að skella mér í strætó niðrá golfvöllinn í Dragør sem tekur klukkutíma btw. en hætti snögglega við það þegar að ég leit út um gluggan, það var snjókoma. Þannig að í dag er ég bara búinn að vera að lesa og pæla í verkefninu. Í kvöld pöntuðum við Ingibjörg okkur Dominos pizzu, ég hef ekki borðað Dominos í marga marga mánuði. Pizzað var mjög góð. Morguninn verður skemmtilegur, okkur er boðið í mat hjá Viðari og Hrafnhildi. En annars þá er ekki mikið um að vera hérna hjá okkur á Elbagade.

| |

fimmtudagur, mars 11, 2004

Í gær var ég að vinna Gallup verkefnið í Dalgas Have. Eigum við kannski aðeins að ræða þá byggingu? Þá verðum við að tala um stórslys. Þegar maður labbar inn þá er vestur endinn til vinstri og austur endinn til hægri. Allt í góðu, en annar er ljós bleikur og hinn ljós blár. Ekki mjög fallegt. Síðan eru það númerin á stofunum, einhver sagði mér að þær hefðu verið númeraðar eftir hversu marga glugga maður gæti séð eitthvað... sem ég náði ekki alveg, frekar asnalegt en ég trúi því nú samt. Allavega þá er númeraserían ekki 1, 2, 3, 4 o.s.frv. eins og við teljum vanalega. Nei, nei 77 er við hliðina á 45 og síðan er kannski 46 í austurendanum. Þetta er allt mjög skrítið. Ef ég finn stofuna mína þarna(sem ég geri nú ekki oft, því að ég er sjaldan í tímum þarna), þá tekur það mig yfirleitt langan tíma að komast aftur út. Ég held að arkitektinn hafi ekki alveg verið að spá í notagildi þessarar byggingar þegar að hann hannaði hana. Nóg um það. Ég hitti einmitt Ásu og Guðrúnu þar í gær, þær voru einmitt að leita að tölvustofunni :-) ég gat ekki vísað þeim veginn. Til hamingju með nýju íbúðina Ása.
Síðan hitti ég Ingibjörgu og Heiðu á Nexus kaffihúsi. Þaðan var haldið heim til Heiðu, þar sem biðu þrjár hillur sem voru búnar að bíða alllengi eftir að komast uppá vegg. Þannig að ég boraði fullt af götum í veggina hjá Heiðu á meðan að þær stelpurnar elduðu dýrindis fajhitas. Nýja borvélin var alveg að gera góða hluti þarna. Enda átján-volta-tryllitæki.
Í dag var hópurinn minn síðan að leggja loka hönd á "miðvegsskýrsluna" um Gallup sem við eigum að skila á morgun. Það gekk allt vel, fyrir utan það að sumir í hópnum mínum mæta frekar sjaldan, og þegar að þeir mæta þá eru þeir sjaldnast sammála því sem er búið að gera síðustu skipti. Skil ekki alveg svoleiðis fólk.
Annars verður sent út næsta stóra forritunarverkefni á morgun, fjör. Þannig að næstu tvær vikurnar ætla ég að lifa í heimi Java og SQL og þeirra fjöldskyldna. Ég verð ekkert í skólanum þessar tvær vikur heldur bara að gera verkefni. Það má búast við mikilli kaffidrykkju og vafnvel að Haribo Super Piratos(saltlakkrís) hjálpi við verkið.
Untill later...

| |

þriðjudagur, mars 09, 2004

Glæsilegt!!!
FC Porto skoraði á 89. mínútu á móti Man. United og komust áfram 3-2. Viktor Knútur sennilega ekki sérlega ánægður með þetta. Man.Utd. hefur nú oft komist áfram á síðustu mínútunum að þeir áttu þetta alveg skilið í þetta skiptið. Annars var leikurinn hin ágætasta skemmtun. Núna er verið að sýna valda kafla úr leik Chelsea og Stuttgart, mér skilst að Eiður Smári hafi verið á bekknum. Ætla að kíkja á þetta.

| |

Mál málana hérna í Kaupmannahöfn í dag er opnunin á stæðstu verzlunarmiðstöð á Norðurlöndum hérna fyrir neðan okkur á Örestaad. Ég held að danir séu bara ekkert betri en íslendingar þegar að Smáralindin opnaði. Klukkan tíu í morgun var komin röð allan hringin í kringum húsið og allir að hlaupa eftir einhverjum opnunartilboðum. Þetta eru 115.000m2 af verzlunum þannig að það ætti einhver að getað verzlað þarna. Það var sett extra gæsla í metróinn í dag og löggan er þarna niðfrá að stjórna umferðinni. Þetta er ótrúlegt.

| |

mánudagur, mars 08, 2004

Ég skellti inn myndum úr golfferðinni sem ég fór í með félögum mínum úr Golfklúbbi Borgarness í október sl. Þetta var mjög skemmtileg ferð. Við vorum rétt við London í bæ sem heitir Croydon á Selsdon Park Hotel & Golf Club. Völlurinn var ágætur, vantaði kannski aðeins meiri rækt í hann, og var á köflum ekki nógu vel hirtur. En mikið landslag í honum og skemmtilegur völlur. Við vorum þarna í 5 daga og spiluðum golf, borðuðum góðan mat og höfðum það gott saman. Mig kítlar orðið í puttana að komast í golf núna, það er sól og gott veður úti. Kannski að maður fari að sveifla aðeins í garðinum. Aðeins að liðka sig. Kíkiði endilega á myndirnar

| |

Við Ingibjörg kíktum til Malmö á laugardaginn. Fórum með lestinni yfir, þetta tekur ekki nema 45 mín. frá Hovedbane. Röltum bara um göturnar í Malmö og höfðum það gott. Ingibjörg gerði líka ágætis verzlunarferð úr þessu :-) Síðan héldum við bara aftur heim yfir brúna um sjö leytið. Fínn dagur í Malmö.
Síðan komu Viðar og fjöldskylda hingað til okkar í heimsókn á sunnudaginn. Við vígðum vöfflujárni sem við fengum í jólagjöf frá ömmu og afa. Fínt að geta skellt í vöfflur þegar að það koma gestir.

| |

ÉG MEINA ÞAÐ, EINU SINNI ENN. HVAR ÆTLAR ÞETTA AÐ ENDA? Þriðja tilraun til að blogga eitthvað að viti. Vonandi að þetta gangi betur en í hin tvö skiptin.
Kveðja frá Köben

| |


:: Info ::


Guðmundur Daníelsson

Elbagade 17, st.tv.
2300 København S
Danmark

Tel: +45.32.97.18.24
Mob: +45.61.60.24.88

gudmundur.danielsson
@gmail.com

:: Myndir ::

GB í London

:: Daglegt mál ::


IngibjörginÁrni.hamstur
Ása Björg
Berglind
Birgir Þór
Egill
Elva Björg
Guðmunda
Guffi
Gulla
Halli Volvo
Hildur Sveins
Ingibjörg frænka
Katrín Hilmars
Magga Pé
Rakel Sif
Sara Jóna
Sara Pé
Sigrún Halla
StefánEinar.com
Svava Lóa
Sunna
Tanja Rut
Victor Knútur
Þórir Strmpur